Fréttabréf Félags eldri borgara Rangárvallasýslu

Þriðjudagur, 23. janúar 2018

2018

Fréttabréf Félags eldri borgara Rangárvallasýslu

Fréttabréf félags eldri borgara í Rangárvallasýslu frá 1. jan. til september 2018

Stjórn félagsins skipa: Formaður Guðrún Aradóttir, ritari Svavar Hauksson, gjaldkeri Þórunn Ragnarsdóttir, meðstjórnendur Sigrún Ólafsdóttir og Júlíus P. Guðjónsson ,varamenn Ingibjörg Þorgilsdóttir og Þorsteinn Markússon, skoðunarmenn eru Sigrún Sveinbjarnardóttir og Rósa Aðalsteinsdóttir, varamenn eru Helga Þorsteinsdóttir og Gyða Guðmundsdóttir

í skemmtinefnd eru Sigríður Erlendsdóttir, Þorgerður Jóna Guðmundsdóttir, Vilborg Gísladóttir og Ásgerður Sjöfn Guðmundsdóttir,

í spilanefnd á Hvolsvelli eru Kristín Sigurðardóttir og Svavar Hauksson, í spilanefnd á Hellu er Jarþrúður Kolbrún Guðmundsdóttir.

 

Spilin verða áfram á fimmtudögum kl;: 14.00 til 16:00 til skiptis á Hellu og Hvolsvelli og byrja á Hellu 11. janúar.

 

Í handverki til vors verða leiðbeinendur Hjálmar Ólafsson í Smíðastofu Hvolsskóla föstudaga kl: 13:30 til 16:00 og byrjar 12.janúar, með handverk í Menningarhúsinu á Hellu verða leiðbeinendur Guðrún Óskarsdóttir, Brynja Bergsveinsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir þriðjudaga og miðvikudaga kl: 13:00 til 16:00.og byrja 16. janúar.

Gjald á önn er 1.500,- pr mann

Handverkssýning er áætluð 28. og 29 apríl í Menningarhúsinu á Hellu.

Nánar auglýst síðar

 

Hringur kór eldri borgara starfar á mánudögum kl 16:00 til 18:00 í Menningarhúsinu á Hellu  og  byrjar 15. janúar 2018, alltaf pláss fyrir nýja félaga í allar raddir, upplýsingar veita                                      Jón Ragnar Björnsson formaður sími 699-0055/ 571-7150 og Kristín Sigfúsdóttir söngstjóri sími 483-1629/ 663-6217

 

Leikfimi er í Hvolnum á Hvolsvelli mánudaga og fimmtudaga kl: 10:00. Ganga og skokk er í íþróttahúsinu á Hvolsvelli föstudaga kl: 9:00. Eins og er meðan sundlaugin er lokuð er íþróttahúsið fullbókað.

Ganga í íþróttahúsinu á Hellu föstudaga kl: 11:00 til 12:00

Boccia er í íþróttahúsinu á Hvolsvelli mánudaga kl: 9:30-10:30 og miðvikudaga kl: 8:50 -9:50

Boccia er í íþróttahúsinu á Hellu mánudaga og miðvikudaga kl: 11:00

 Og hefst á báðum stöðum 15.janúar. 2018 Allar nánari upplýsingar veitir Júlíus P. Guðjónsson 663-7065.

Áætlað er að hafa aðalfund félagsins á Hvoli Hvolsvelli  fimmtudaginn 5. apríl  2018 og hefst hann kl: 13:00 síðan verður spilað á eftir.Nánar auglýst síðar.

Sparidagavikur eldri borgara  verða í Örkinni eftirtaldar dagsetningar 3.mars til 9. mars. 2018 (18. mars til 23. mars. 2018 )og 29. apríl til 4. maí.2018. Fullbókað er dagana 18 til 23 mars. en 5 herbergi pöntun vikurnar 3.- 9. mars og 29.apríl til 4. maí.

Verð fyrir 2.manna herbergi er 52.000,- á mann aukagjald fyrir einbýli er 9.500,-

Dagskrárstjóri er Gunnar Þorláksson

Pantanir berist til Þórunnar Ragnarsdóttur sími 487-5922 eða 892-5923 sem heldur hópnum saman og verður í sambandi við Hótel Örk.

Messa á Uppstigningadag, degi aldraðra, þann 10. maí 2018, ekki ákveðið hvar hún verður. Rútuferð verður eins og áður í þessa messu. Nánar auglýst síðar.

Sumarstarfið:  Sundleikfimi verður í sumar í sundlaugunum á Hellu og Hvolsvelli ef næg þátttaka fæst.

Hið sívinsæla pútt á Strandavelli verður á þriðjudögum og byrjar eftir miðjum maí, nánar auglýst síðar Allar upplýsingar eru hjá Mörtu Arngrímsdóttur .487-8249/868-4511

 

Vorferðin í júní verður fimmtudaginn .14 júní 2018 ekið um Grafning, Þingvelli, Nesjavallaleið og Kjósin.

Nánar auglýst síðar.

 

Sumarferðin :Búið er að panta í ferð dagana 8. til  11. júlí  2018 gist verður á Hótel Eddu á Akureyri allar næturnar farið verður í Mývatnssveit, Bárðardal, Aðaldal og að  Þeistareykum. Ekki öll verð tilbúin en verða auglýst þegar þau berast. Þeir félagar sem hafa hug á að koma með vinsamlega skráið nöfn ykkar sem fyrst hjá Þórunni í síma 487-5922eða 892-5923 því hótelið verður að fá töluna vegna gistingar tveimur mánuðum fyrir brottför því þetta er mesti annatími sumarsins.

 

Haustferðin verður farin  fimmtudaginn 16. ágúst 2018 ekið verður inn Rangárvallaafrétt og fram Fljótshlíðarafrétt. Nánar auglýst í Búkollu

 

Fréttabréfið verður sett á heimasíður Rangárþings eystra, Rangárþings ytra og Ásahrepps þar í pakka “Félagsstarf eldri borgara” svo félagsmenn geti séð það þar

 

Vonum við hjá stjórn að þetta verði gott ár hjá okkur eins og ævinlega.

 

Félagsmenn vinsamlega auglýsið starf okkar og komið á framfæri að allir Rangæingar 60 ára og eldri séu velkomnir í félagið, það er alltaf gott að fá nýja félaga og þar með nýjar hugmyndir.

 

Guðrún Aradóttir , Svavar Hauksson, Þórunn Ragnarsdóttir, Sigrún Ólafsdóttir, Júlíus P. Guðjónsson, Ingibjörg Þorgilsdóttir og Þorsteinn Markússon.