Námskeið fyrir einstaklinga og fyrirtæki í ferðaþjónustu

Þriðjudagur, 28. febrúar 2017

 

Markaðsstofa Suðurlands ásamt Manhattan markaðsráðgjöf ætlar að kynna markaðsgreiningu sem unnin var fyrir áfangastaðinn Suðurland. Í kjölfar kynningar verður svo námskeið fyrir aðila í ferðaþjónustu í hvernig þeir geta notfært sér upplýsingar úr greiningunni í markaðssetningu á sinni þjónustu. 

Dagskrá

  • Kynning á markaðsgreiningu fyrir áfangastaðinn Suðurland.
  • Námskeið í markaðssetningu ferðaþjónustu.

Námskeiðið er ætlað bæði einstaklingum og fyrirtækjum í ferðaþjónustu á Suðurlandi og fjallað verður um hvernig hægt er að nýta sér upplýsingar úr greiningunni til markaðssetningar á þjónustu. Einnig verður farið yfir helstu grunn atriði markaðsfræðinnar og fjallað um þau á hagnýtan hátt.

Brynjar Þór Þorsteinsson aðjúnkt á Háskólanum á Bifröst og Haraldur Daði Ragnarsson einn stofnenda Manhattan markaðsráðgjafar munu stýra námskeiðinu. 

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Hvernig geta aðilar í ferðaþjónustu nýtt sér skýrsluna.
  • Markaðsfræði ferðaþjónustu.
  • Hagnýt atriði í markaðsmálum og stefnumótun (verkfærakista).
  • Upplifun og söfnun upplýsinga.
  • Stafræn markaðssetning, heimasíða og samfélagsmiðlar.
  • Tenging við skýrslu, virðiskeðja þjónustu, gæði þjónustu o.fl.
  • Vinnustofa þátttakenda þar sem þeirra umhverfi er mátað við námsefnið.

Námskeiðin verða haldin á eftirfarandi stöðum: 

Höfn – 8. mars, kl. 18 til 22. Nánari staðsetning auglýst síðar.

Vík – 9. mars í Kötlusetri, kl. 12 til 16.

Selfoss – 10. mars í Fjölheimum, kl. 9 til 13.

 

Námskeiðin eru öllum opin. Skráningargjald fyrir aðila Markaðsstofu Suðurlands er 3.900 kr. en aðila utan 5.900 kr.

Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á netfangið thorsteinn@south.is