Tilkynning frá Vatnsveitunni – vinsamlegast farið sparlega með vatn!

Fimmtudagur, 15. ágúst 2019

Sökum mikilla þurrka undanfarið og lækkandi grunnvatnsstöðu, þá er mikið álag á veitukerfi sveitarfélaganna.  Nú sem aldrei fyrr er því mikilvægt að fara sparlega með vatn og yfirfara hvort einhvers staðar er sírennsli.  íbúar og aðrir sem tengdir eru vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps eru beðnir um að stilla allri vökvun og almennri vatnsnotkun í hóf.  Þetta á einkum við svæðið vestan Ytri-Rangár.