Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita óskar eftir að ráða starfsmann í fullt starf

Mánudagur, 13. nóvember 2017

Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita er byggðasamlag sveitarfélaganna Grímsnes- og Grafningshrepps, Bláskógabyggðar, Hrunamannahrepps, Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Flóahrepps og Ásahrepps sem hefur það hlutverk að annast lögbundin verkefni byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa auk verkefna sem varða umhverfis- og tæknimál. Verkefni byggðasamlagsins í umhverfis- og tæknimálum eru margvísleg en þar á meðal er unnið að vatns-, hita, og fráveitumálum, gatnagerð, viðhaldi og nýbyggingum húsa, sorpmálum, vinnslu úrgangs og fleira sem til fellur. Starfsaðstaða er á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi.

Starfssvið :

  • Verkefnastjórnun og verkeftirlit vegna nýframkvæmda og viðhaldsmála á sviði umhverfis- og gatnakerfa.
  • Ábyrgð á að framkvæmd verkefna sé í samræmi við lög og reglugerðir.
  • Samskipti við opinbera aðila, hönnuði og verktaka.
  • Vinna við fráveitumál.
  • Vinna við landupplýsingagrunn.
  • Vinna við GPS landmælingar.
  • Vinna við umhverfismál.
  • Áætlanagerð og forgangsröðun verkefna.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Byggingafræðingur, -tæknifræðingur eða -verkfræðingur eða aðra sambærilega menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla og þekking á fráveitum og gatnagerð.
  • Reynsla og þekking á umhverfismálum.
  • Reynsla og þekking á verkefnastjórnun.
  • Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Þekking og reynsla af notkun Windows-Office og CAD-hugbúnaðar .

 

Frekari upplýsingar um starfið veitir Eyþór Sigurðsson í síma 480 5500 á skrifstofutíma.

Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá sem og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir

 ástæðu umsóknar og rökstuðningi á hæfni viðkomandi í starfið.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til og með 4. desember 2017 á netfangið tsv@utu.is