Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita auglýsir eftirfarandi starf laust til umsóknar

Miðvikudagur, 26. apríl 2017

Móttökuritari með aðstöðu á Laugarvatni

Starfssvið:

·    Símsvörun.

·    Skráning og meðhöndlun skjala.

·    Svörun fyrirspurna sem berast embættinu, bæði í gegnum síma og tölvupóst.

·    Önnur almenn skrifstofustörf.

Menntunar- og hæfniskröfur:

·      Góð almenn tölvukunnátta skilyrði.

·      Reynsla af skrifstofuvinnu með áherslu á skjalavinnslu er kostur.

·      Sjálfstæði í vinnubrögðum og vilji til að kynna sér nýjungar og takast á við fjölbreytt verkefni.

·      Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita hefur það hlutverk að annast lögbundin verkefni skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa fyrir aðildarsveitarfélög byggðasamlagsins auk þess að vinna að tækni- og framkvæmdamálum. Byggðasamlagið er með starfsstöðvar á Laugarvatni í Bláskógabyggð og á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi og þjónar sveitarfélögunum Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi. Umsóknir skulu berast embættinu að Dalbraut 12, 840 Laugarvatni, fyrir 12. maí n.k. Nánari upplýsingar um starf móttökuritara veitir Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi (petur@utu.is ) í síma 480 5550 milli kl. 9 og 12 alla virka daga.