Vinna hafin við nýja borholu á Laugalandi

Þriðjudagur, 12. september 2017

 

Vinna við borun nýrrar borholu á Laugalandi í Holtum er hafin. Væntingar eru um að finna heitt vatn og auka þannig nýtanlegan forða Rangárveitna. Í tengslum við borunina verður nú um miðjan mánuð slökkt á dælingu úr nærliggjandi vinnsluholu í þeim tilgangi að tryggja afkastagetu hennar. Búast má lægra hitastigi á vatni hjá viðskiptavinum Rangárveitna austan Laugalands, þar með talið á Hellu og Hvolsvelli. Ekki er gert ráð fyrir að þetta hafi mikil áhrif hjá viðskiptavinum. Gert er ráð fyrir að borunin taki um fjórar vikur og verður vinnsluholan gangsett aftur að borun lokinni.

Jarðboranir sjá um verkið fyrir hönd Veitna og nýta til þess jarðborinn Óðinn sem sjá má á meðfylgjandi mynd.