Dreifing áburðar á Holtamannaafrétti

Miðvikudagur, 5. júní 2019

Auglýst er eftir áhugasömum aðilum til að sjá um dreifingu áburðar til uppgræðslu á Holtamannaafrétti nú í sumar.  Þessi áburðardreifing er liður í landbótum á afréttinum.  Dreifing mun verða á Búðarhálsi og Þóristungum.

Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá sveitarstjóra Ásahrepps, Valtý Valtýssyni, í síma 897-0890 eða með því að senda tölvupóst á póstfang valtyr@asahreppur.is

Umsóknir skulu berast á fyrrgreint tölvupóstfang eða skriflega á skrifstofu Ásahrepps í síðasta lagi 15. júní 2019.

 

Fjallskiladeild Holtamannaafréttar
Hreppsnefnd Ásahrepps
Laugalandi
851 Hella