Náms- og rannsóknarstyrkur

Miðvikudagur, 1. nóvember 2017

Náms- og rannsóknarstyrkur

Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um náms- og rannsóknarstyrk fyrir árið 2017.  Styrkurinn nemur 1.250.000 kr.

Styrkurinn er ætlaður námsfólki sem vinnur að rannsóknarverkefni til lokaprófs á háskólastigi. Verkefnið skal tengjast Suðurlandi og þjóna ótvíræðum atvinnu- og/eða fræðilegum tilgangi fyrir Suðurland eða hluta Suðurlands.

Styrkumsóknir sendist til eyjolfur@fraedslunet.is  eða sigurdur@hfsu.is  Umsóknarfrestur er til 10. nóvember næstkomandi.  Nánari upplýsingar um sjóðinn og styrkveitingar eru að finna á vefsíðu Fræðslunetsins.