Opnað fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk vegna áhrifa COVID-19

Mánudagur, 23. nóvember 2020

Opnað hefur verið fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og frístundastyrkjum fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum þar sem markmiðið er að jafna tækifæri þeirra til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og frístundastarfi.

Hægt er að sækja um styrk fyrir börn sem fædd eru á árunum 2005-2014 og búa á heimili þar sem heildartekjur heimilisins voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars – júlí 2020. Styrkurinn er 45.000 kr. á hvert barn og um 13.000 börn eiga rétt á styrknum. Í Rangárvallasýslu annast Félagsþjónustan afgreiðslu styrkumsókna eftir að búið er að kanna rétt til styrksins inni á Ísland.is.

Styrkina er hægt er að nota til niðurgreiðslu á þátttökugjöldum vegna íþróttaiðkunar, tónlistanáms eða annarra frístunda. Sveitarfélög setja reglur um úthlutun styrkjanna en fyrirkomulag getur verið breytilegt á milli sveitarfélaga til dæmis varðandi hvaða íþrótta- og frístundastarf er styrkhæft, hvaða gögnum beri að skila með umsókn og afgreiðslutími umsókna. 

Nánari upplýsingar má finna hér: https://island.is/styrkur-til-ithrotta-og-tomstundastarfs

Til að sækja um styrkinn fyrir íbúa í Ásahreppi þarf að hafa samband við Félagsþjónustu Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu:

  • með því að senda tölvupóst á felagsmal@felagsmal.is
  • hafa samband í gegnum síma 487-8125 og biðja um símtal við ráðgjafa vegna tómstundastyrks
  • koma í afgreiðslu félagsþjónustunnar að Suðurlandsvegi 1-3, Hellu og fylla þar út umsókn um styrkinn

Með styrkumsókn þarf að fylgja útprentuð staðfesting frá island.is (má einnig vista og senda rafrænt í tölvupósti með umsókninni) um að viðkomandi eigi rétt á styrknum og einnig þarf að fylgja staðfesting á útlögðum kostnaði vegna íþrótta- og tómstundastarfs barns/barna í fjölskyldunni.

Ef vafi leikur á hvort ákveðið íþrótta- og tómstundastarf sé styrkhæft er hægt að fá leiðbeiningar sbr. leiðirnar hér að ofan.

Einungis er hægt að sækja um styrk vegna þátttöku í íþrótta- eða tómstundastarfi, ekki til kaupa á íþróttavörum, búnaði eða öðru þess háttar. Einungis er styrkt vegna barna á aldrinum 6-16 ára, fædd á árunum 2005 til 2014, þ.e. á grunnskólaaldri.

Starfsmenn Félagsþjónustu Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu afgreiða umsóknir sem berast og svara umsækjendum að því loknu eða innan mánaðar frá því að öll gögn liggja fyrir. Ef viðkomandi fær synjun á umsókn sína frá starfsmönnum félagsþjónustunnar eða er ósáttur við niðurstöðu málsins getur hann skotið málinu til Félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu sem fjallar þá um málið. Erindi þess eðlis skal sent skriflega ásamt rökstuðningi umsækjanda til:

Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu, Suðurlandsveg 1-3, 850 Hella.