Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15 - 17 ára námsmanna

Mánudagur, 7. janúar 2019

Foreldrar 15 – 17 ára barna sem hafa rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi eru minntir á að skila þarf inn nýrri umsókn í upphafi skólaárs. Umsóknir er hægt að nálgast á heimasíðunni felagsmal.is. Með umsóknum þarf að fylgja húsaleigusamningur og staðfesting á námi barns. Athuga ber að sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15-17 ára er samþykktur eina önn í senn og skila ber staðfestingu á áframhaldandi námi ungmennis við upphaf nýrrar annar. Skila þarf umsóknum og fylgigögnum á skrifstofu félagsþjónustunnar að Suðurlandsvegi 1 – 3, 850 Hellu eða á netfangið annette@felagsmal.is