Íbúafundir um viðræður um mögulega sameiningu Ásahrepps, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps fara fram þessa dagana. Fundirnir eru haldnir til að kynna verkefnið og leita eftir sjónarmiðum íbúa. Í ljósi samkomutakmarkana fara fundirnir fram rafrænt.
Íbúafundur fyrir íbúa Ásahrepps verður haldinn í kvöld og hefst hann klukkan 20:00. Íbúar Ásahrepps eru hvattir til að skrá sig á fundinn, en hægt er að skrá sig á heimasíðu verkefnisins.
https://www.svsudurland.is/is/hagnytar-upplysingar/frettir/ibuafundir-um-sameiningarvidraedur
Fundinum verður líka streymt á Youtube og hefst útsendingin kl. 19.50. Hægt er að nálgast streymið á svsudurland.is