Sorpstöð Rangárvallasýslu auglýsir vor- og sumarhreinsun

Mánudagur, 15. maí 2017

 

Sorpstöð Rangárvallasýslu auglýsir vor- og sumarhreinsun

Dagana 1.júní til 28. júní 2017 verður hreinsunarátak í sveitum á vegum Sorpstöðvar Rangárvallasýslu.  Gámar verða á tímabilinu staðsettir á eftirtöldum stöðum, þ.e. á „gömlu“ gámastæðum þessara staða:

Á gámastæðunum verða gámarnir sem hér segir:  

1.      Skógum, Heimalandi, Fljótshlíð 1. júní til 7. júní.

2.      A-Landeyjum, V-Landeyjum, Bakkabæjum 8. júní til 14. júní.

3.      Rangárvöllum (vegamót Gunnarsholtsvegar og Þingskálavegar), Þykkvabæ, 15. júní til 21. júní.

4.      Hellu og Landvegamótum 22. júní til 28. júní

Sérstaklega skal taka fram að eingöngu verða þar gámar fyrir málma, timbur, grófan úrgang og kör fyrir rafgeyma.  Gámarnir eru eingöngu ætlaðir fyrir fasteignaeigendur á starfssvæði Sorpstöðvar Rangárvallasýslu og eru gjaldfrjálsir.

Ákaflega mikilvægt er að rétt sé flokkað í gámana.  Ef misbrestur verður á því er engin leið önnur en að fjarlægja gámana áður en hreinsunarátakinu lýkur og aðrar leiðir verður að fara í hreinsunarátaki að ári liðnu.  Vart þarf að taka fram að algerlega óheimilt er að setja úrgang utanvið gámana.

Þeir aðilar sem mikið magn úrgangs hafa á sínum búum eða svæðum geta óskað eftir að fá sendan gám eða gáma, eftir umfangi, á þá staði.  Ætlast er til að magn það sem um ræðir fylli þann gám eða þá gáma sem þar verða settir niður.  Sömu flokkunarreglur gilda um þá gáma og aðra gáma sem boðið verður uppá.

Þetta hreinsunarátak á ekki við um svokallað heimilissorp en það er sótt sérstaklega á öll heimili og frístundahúsaeigendur hafa eftirfarandi kosti til að losna við það; Gámavöllur á Strönd, gámavöllur á Hvolsvelli, gámar við Móeiðarhvol og gámaplön við Hellu og Landvegamót.  Rekstrarúrgang og annan úrgang verða íbúar og rekstraraðilar að koma með á móttökustöðina á Strönd eða semja við þjónustuaðila um hirðingu og losun þess úrgangs.  Rúllu- og baggaplast er sótt heim til bænda skv. samkomulagi þeirra við þjónustuaðila.  Einnig er hægt að losna við plastið á gámavöllunum á Strönd og á Hvolsvelli.

Eftir að hreinsunarátakinu lýkur verða allir gámar fjarlægðir og algerlega er óheimilt að afsetja úrgang á þessi svæði.

Allar nánari upplýsingar veitir Ómar Sigurðsson, starfsmaður Sorpstöðvar Rangárvallasýslu.
Sími:  487 5157
Tölvupóstur:  strond@rang.is

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs.