Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. auglýsir sumarhreinsun fyrir íbúa í dreifbýli Rangárvallasýslu.

Þriðjudagur, 10. maí 2022

Frá miðjum maí og fram í júní mun Sorpstöðin bjóða uppá að hirða járn og timbur heima á bæjum
skv. pöntunum líkt og gert var í fyrra.

Til að fá heimsókn gámabíls þurfa íbúar á bæjum á svæði Sorpstöðvarinnar að senda tölvupóst á
strond@rang.is og tilgreina kennitölu, heimilisfang, símanr, úrgangstegund og áætlað magn hennar.

Mikilvægt er að hugað sé vel að því að gámabíllinn geti athafnað sig þegar úrgangur er sóttur.
Pantanir þurfa að berast fyrir 15. maí 2021 og í kjölfarið verða íbúar upplýstir nánar hvaða daga
gámabíllinn verður á hverju svæði.

Nánari upplýsingar veitir Ómar verkstjóri á Strönd í síma 487 5157, tölvupóstur: strond@rang.is